LANDSSAMBAND SLÖKKVILIÐS- OG SJÚKRAFLUTNINGAMANNA
Landssamband slökkvuliðs- og sjúkraflutningamanna

 

Slökkvistöðin á Akranesi
Slökkvistöðin á Akranesi
Fréttir | 13. febrúar 2012 - kl. 14:19
Opinn dagur hjá slökkviliðinu á Akranesi
Félag slökkviliðsmanna á Akranesi stóð fyrir opnu húsi á slökkvistöðinni í tilefni að 112 deginum. Um eitthundrað manns mættu til í heimsókn og var fólk almennt ánægt með móttökurnar og sýndi búnaðinum mikinn áhuga. Myndirnar tala sínu máli. Bláu ljósin vöktu athygli hjá börnunum.
Meira
Frá verðlaunaafhendingu á höfðborgarsvæðinu. Á myndinni eru verðlaunahafar ásamt formanni LSS, Slökkviliðsstjóra og Innanríkisráðherra
Frá verðlaunaafhendingu á höfðborgarsvæðinu. Á myndinni eru verðlaunahafar ásamt formanni LSS, Slökkviliðsstjóra og Innanríkisráðherra
Fréttir | 08. febrúar 2012 - kl. 12:18
112-dagurinn haldinn um allt land 11. febrúar
112: Ekki hika – hringdu til öryggis Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að hika ekki heldur hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda – til öryggis. Efnt er til dagskrár í Smáralind og hjá viðbragðsaðilum um allt land. 112-dagurinn er haldinn víða um Evrópu á sama tíma en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins. Fjölbreytt dagskrá í Smáralind
Meira
Sigurlaug dregur út vinningshafa.
Sigurlaug dregur út vinningshafa.
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 13:15
Dregið í Eldvarnagetraun LSS
Í nóvember var árlegt Eldvarnaátak LSS og slökkviliðanna. Þá voru allir 3. bekkir grunnskólanna heimsóttir og fræddir em eld og eldvarnir á heimilum. Börnin svöruðu síðan getraun og var dregið úr réttum lausnum í dag. Viðurkenningar til barna á höfuðborgarsvæðinu verða afhentar á 1-1-2 deginum þann 11. febrúar í Smáralindinni. Slökkviliðsstjórar munu heimsækja vinningshafa á landsbyggðinni. Vinningshafa má sjá með því að smella á meira.
Meira
Garðar, Bjarni Kr og Borgar ábúðarfullir í Borgarnesi
Garðar, Bjarni Kr og Borgar ábúðarfullir í Borgarnesi
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 12:54
Laganefnd LSS að störfum
Á síðasta ársþingi var samþykkt að stofna nefnd til að fara yfir lög LSS. Nefndin er skipuð þeim Garðari Svanssyni, Borgari Valgeirssyni og Bjarna Kr. Þorsteinssyni. Starfið er komið á fullt og er stefnt á að tillögur liggji fyrir mánuði fyrir ársþingið. Ábendingar frá félagsmönnum vel þegnar.
Meira
Einar Óli Fossdal
Einar Óli Fossdal
Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 09:41
Lifir fyrir að hjálpa fólki
Feykir 12. janúar, viðtal Berglind Þorsteinsdóttir
Lifir fyrir að hjálpa fólki viðtal Berglind Þorsteinsdóttir Einar Óli Fossdal var útnefndur maður ársins á Norðurlandi vestra af lesendum Feykis. Einari Óla hefur verið lýst sem hvunndagshetju sem tekur annarra hag umfram sinn eigin og lætur sér aðra varða, hvort sem það er með aðstoð við fólk sem er í nauðum statt eða skipta um peru hjá þeim sem megna það ekki sjálfir. Af því tilefni leit Blaðamaður Feykis við á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi til að færa manni ársins blómvönd og náði stuttu spjalli við hann á milli þeirra fjölbreyttra verka sem ...
Meira
Fréttir | 31. janúar 2012 - kl. 16:37
Orlofshús LSS um Páska
Munaðarnes Páskaleiga 04. apríl – 11. apríl 2012. Umsóknarfrestur: til og með 15. febrúar n.k. Félagsmenn sendi inn umsókn á netfang, www.lsos@lsos.is . Ath. taka fram hvort sótt er um Munaðarnes, Akureyri eða Brautarholt og í athugasemd að um páskaleigu sé að ræða. Stjórn Orlofsheimilasjóðs LSS
Meira
Fréttir | 20. janúar 2012 - kl. 13:41
Starfsmatið
Vinnu við Starfsmatið er ekki lokið og því mun ekki verða greitt samkvæmt því um næstu mánaðarmót.
Meira
Fréttir | 06. janúar 2012 - kl. 13:27
Sjúkraflutningamenn á Fésbókinni
fagdeild.sjukraflutningamanna@groups.facebook.com
Fagdeildar sjúkraflutningamanna innan LSS hafa stofnað vefsíðu á Facebook ; fagdeild.sjukraflutningamanna@groups.facebook.com Þetta er sameiginlegur vettvangur fyrir sjúkraflutningamenn LSS til skoðanaskipta og frétta. Þar sem vinna við endurskipulag sjúkraflutninga er í gangi er nauðsynlegt að sem flestir geti komið sínum skoðunum á framfæri sem og með einhver málefni sem heyrt gætu undir fagráð sjúkraflutninga.
Meira
Fréttir | 04. janúar 2012 - kl. 15:43
Reglugerð um öryggismál á flugvöllum
Þann 30. desember s.l. tók gildi ný reglugerð um öryggismál á flugvöllum. Þar eru gerðar ýmsar breytingar á fyrri reglugerð nr. 464/2007. Reglugerðina má ...
Meira
Fréttir | 21. desember 2011 - kl. 11:55
Skrifstofan er lokuð 30.12 - 2.01. 2012
Hægt er að ná í framkvæmdastjórann í síma 892-2635.
Meira
Fréttir | 19. desember 2011 - kl. 09:48
Nýr kjarasamningur fyrir sjúkraflutningamenn
Atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning LSS fyrir sjúkraflutningamenn er lokið. Atkvæði greiddu 100% Já sögðu 87% Nei sögðu 13% Samningurinn telst því samþykktur með 87% atkvæða. Samkvæmt landslögum þá geta einungis þeir sem eru í föstu starfshlutfalli greitt athvæði. Hægt er að skoða kjarasamninginn á síðunni hér til vinstri.
Meira
Fréttir | 09. desember 2011 - kl. 12:29
Dómur í uppsagnarmáli
frétt af vef BSRB
Í dag féll dómur Hæstaréttar í máli félagsmanns BSRB gegn Isavia ohf. Hæstiréttur snéri niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness frá 9. febrúar 2011. Dómurinn er fordæmisgefandi og hefur mikla þýðingu fyrir félagsmenn bandalagsins varðandi réttarstöðu þeirra við aðilaskipti að fyrirtækjum. Málavextir voru þeir að félagsmaður BSRB, G, starfaði ....
Meira

Tilkynningar
13. apríl 2012 - 14. apríl 2012
Ársþing LSS 13. apríl
Febrúar 2012
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829123
FyrriNúnaNæsti

Orlofsvefur LSS

 

Trausti
Ertu alveg eldklár? Prófaðu þennan eldvarnarleik...
Trausti



Landssamband
slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna
Brautarholt 30, 2. hæð
105 Reykjavík
Sími 562-2962
Fax  562-2963
lsos@lsos.is


Skrifstofan er opin
frá kl. 9-12 alla virka daga